© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
27. september
Miðaverð frá
5.500 kr.




Flytjendur:
Oddur Arnþór Jónsson, söngur
Stefán Jón Bernharðsson, horn
Mathias Susaas Halvorsen, píanó
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Rannveig Marta Sarc, fiðla
Svava Bernharðsdóttir, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Á upphafstónleikum afmælisárs Kammermúsíkklúbbsins fá áheyrendur að heyra verk sex ólíkra tónskálda, þriggja íslenskra og þriggja erlendra. Oddur Arnþór Jónsson baritón stígur á svið í tveimur ástsælum kammerverkum, Dover Beach fyrir rödd og strengjakvartett eftir bandaríska tónskáldið Samuel Barber og Auf dem Strom fyrir rödd, horn og píanó eftir Franz Schubert, sem samdi verkið til að heiðra Beethoven á fyrsta dánarafmæli hans. Á fyrri hluta tónleikanna leika Rannveig Marta Sarc og Svava Bernharðsdóttir einnig tvö nýleg dúó fyrir fiðlu og víólu sem Hildigunnur Halldórsdóttir og Finnur Karlsson sömdu sérstaklega fyrir mæðgurnar.
Kammermúsíkklúbburinn heiðrar minningu Jóns Nordal, sem hefði orðið 100 ára á þessu ári. Systur í Garðshorni fyrir fiðlu og píanó er eitt af fyrstu verkum Jóns, samið á lýðveldisárinu þegar hann var aðeins 18 ára gamall og hljómar hér í flutningi Ara Þórs Vilhjálmssonar og Mathiasar Susaas Halvorsen. Þeir koma einnig fram í lokaverki tónleikanna, Horntríóinu eftir Johannes Brahms ásamt Stefáni Jóni Bernharðssyni, leiðara horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.
Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

