© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
7. ágúst
Sala hefst
2. júlí 2026, 15:00
(eftir 1 dag)




Byggt á sönnum sögum
Selfyssingurinn Theodóra Guðnadóttir mætir með nýju uppistandssýninguna sína ,,Byggt á sönnum sögum” á Sviðið eftir vel heppnaða frumsýningu í Borgarleikhúsinu í vor. Sýningin er sjálfstætt framhald “Tilvistarkreppu” sem Theodóra setti upp 2024 í Borgarleikhúsinu.
Í sýningunni veltir hún fyrir sér lífinu á þessum skrýtna aldri, 28 ára. Ekki gömul en ekki ung lengur, þetta er millibilsástand; þú átt að vera með plan, en ert í raun bara að reyna að halda dampi. Pattaraleiki, hestabaktería og kötturinn Cathildur eru meðal yrkisefna.
Ekki missa af einni ferskustu uppistandssýningu ársins!
Höfundur, leikstjórn, leikmynd og búningar: Theodóra Guðnadóttir
Dramatúrg: Benjamín Kristján Jónsson
Ljósmyndir: Esther Ýr Óskarsdóttir
Myndvinnsla og grafísk hönnun: Rakel Helga Rögnvaldsdóttir

