© 2026 Tix Miðasala
Ásmundarsalur
•
14. - 22. ágúst
Miðaverð frá
6.500 kr.




Dansverkið Heyrðu mig er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Verkið segir frá lífi hennar, frá bernsku til dagsins í dag, þar sem baráttan, þrautseigjan, líf og list flæða inn í hreyfingu, rytma og líkama. Í verkinu fléttast dans og táknmál saman við sjónrænar upplifanir og hljóðheim sem endurspeglar líkamlega skynjun. Verkið er flutt í innsetningu eftir Jóní Jónsdóttur en innsetningin mun standa uppi á milli sýninga. Gestir geta því skoðað hana utan sýningartíma auk innsetningar í Gryfjunni í Ásmundarsal sem einnig hluti af verkinu.
Dansarar:
Diljá Sveinsdóttir
Bjartey Elín Hauksdóttir
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Lísbet Sveinsdóttir
Sóley Ólafsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Danshöfundur:
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Sjónrænt útlit:
Jóní Jónsdóttir
Tónlist:
Urður Hákonardóttir
Lýsing:
Kjartan Darri Ólafsson
Listræn ráðgjöf:
Margrét Sara Guðjónsdóttir
Myndbandsgerð:
Jan Moczulsk
Ljósmynd á plaggati:
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

