© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
2. september
Miðaverð frá
2.900 kr.




Spönn er ný og fersk kollektíva stofnuð af tveimur tónlistarkonum sem vilja spanna bilið milli hefðar og nýsköpunar í klassískri tónlist. Að Spönn standa Kristín Ýr Jónsdóttir, flautuleikari og Þórhildur Magnúsdóttir, víóluleikari.
Fyrsta tónleikaröð Spannar samanstendur af þrennum tónleikum sem allir tengjast flautuleikaranum Manuelu Wiesler og áhrifum hennar á íslenskt tónlistarlíf. Þessir aðrir tónleikar raðarinnar, undir yfirskriftinni Glitspor, eru tileinkaðir tríóverkum fyrir flautu, víólu og hörpu. Að þessu sinni fá Kristín Ýr og Þórhildur til liðs við sig hörpuleikarann Gunnhildi Einarsdóttur. Á efnisskránni verða m.a. hin rómaða Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Claude Debussy, Kveðja eftir Þorkel Sigurbjörnsson, samið í minningu Manuelu, og Petite Suite eftir André Jolivet.
Tónleikarnir hafa það að markmiði að heiðra og halda á lofti minningu flautuleikarans Manuelu Wiesler. Hún fæddist í Brasilíu árið 1955 en ólst upp í Vínarborg. Hún stundaði framhaldsnám í flautuleik í París þar sem hún kynntist fyrri eiginmanni sínum og fluttist með honum til Íslands árið 1973, aðeins 18 ára gömul. Eftir viðburðaríkan áratug á Íslandi, þar sem hún öðlaðist nánast goðsagnakenndan sess, skipti hún um svið og fluttist til Svíþjóðar og síðan til Austurríkis, þar sem hún bæði kenndi og kom fram á tónleikum víðsvegar um heiminn. Árið 2025 hefði Manuela orðið 70 ára og í ár eru liðin 20 ár frá dánarári hennar og því við hæfi að minnast þessarar merkiskonu.
Vera Manuelu á Íslandi hafði víðtæk áhrif á íslenskt tónlistarlíf og fyrir hana voru samin mörg ný verk fyrir þverflautu. Hún kenndi flautunemendum og hjálpaði til við útgáfu nýrrar klassískrar tónlistar. Þótt Manuela sé mögulega þekktust fyrir flutning nýrra verka þá var það hennar skoðun að eldri og nýrri tónlist héldust í hendur og það að vinna með nýja tónlist hjálpaði við flutning eldri tónlistar og öfugt.
Áætluð lengd tónleikanna eru 75 mínútur, án hlés.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.

