© 2026 Tix Miðasala
•
5. - 6. júlí
Miðaverð frá
4.000 kr.




AUKASÝNINGAR, AUKASÝNINGAR, AUKASÝNINGAR!!
Eftir mikla eftirspurn og í tilefni þess að sýningin Fjöllin vakna heldur út fyrir landsteinanna á leiklistarhátíð NEATA (North European Amateur Theatre Alliance) í Eistlandi 9. - 13.júlí verða nú sýndar örfáar aukasýningar!
Fjöllin vakna hjá Leikfélaginu Hugleik var sýnd á stuttu tímabili rétt fyrir páska á þessu ári og er ný og fjörug sýning sem leikhópurinn hefur sjálfur samið undir handleiðslu Maríu Bjartar leikstjóra og Birgittu Bjarkar aðstoðarleikstjóra og textahönnuðar.
Verkið er lauslega byggt á íslenskum þjóðsögum, þar sem vel þekktar sögur fá nýjan og skemmtilegan búning. Á sviðinu birtast litríkar og gamansamar persónur sem leiða áhorfendur í gegnum sögur af tröllum, Djáknanum og Selshamnum, svo eitthvað sé nefnt.
Úr verður sprenghlægileg sýning, þó undir niðri megi einnig finna þann drungalega undirtón sem einkennir margar af okkar helstu þjóðsögum.
Í sýningunni eru einnig þrælskemmtileg söngatriði eftir tónlistarmennina Loft S. Loftsson, Þorgeir Tryggvason og Ármann Guðmundsson. Þeir tveir síðastnefndu skipa hljómsveit sýningarinnar sem kallar sig Kári & Korriró.
Allt áhugafólk um leikhús ætti því alls ekki að láta aukasýningar á þessa veislu gleði, tónlistar og sköpunar fram hjá sér fara.

