Undir sömu stjörnu

Menningarfélag Akureyrar

18. október

Miðaverð frá

6.900 kr.

Opnunarviðburður Óperunnar í Hofi. 

Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um "Ástarstjörnu yfir Hraundranga" samdi Richard Wagner óperuaríu til “Kvöldstjörnunnar" sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?


Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga Óperunnar rakin, frá endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. 

Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik og skemmtun og flytur okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar.

Fram koma Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, Kristján Ingi Jóhannesson, barítón, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, og stórleikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.

Opnunarviðburðurinn verður 18. október í Hofi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í Þjóðleikhúsinu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger