Todmobile

Dægurflugan

14. nóvember

Sala hefst

3. júlí 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Todmobile hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrr á árinu og býður nú til sérstakra hátíðartónleika þar sem farið verður yfir ferili sveitarinnar, allt frá fyrstu árunum til dagsins í dag og allt þar á milli.

Hljómsveitina skipa þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm Einarsson og Kjartan Valdemarsson.

Hljómsveitina skipa þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm Einarsson og Kjartan Valdemarsson.

Sveitin verður ekki ein á ferð því með þeim verða Jónína Björt Gunnarsdóttir, kór, Strokkvartettinn Siggi og Guðni Franzson

Sérstakur gestur kvöldsins er Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem hefur tekið þátt í mörgum stærstu tónleikaviðburðum sveitarinnar og hljóðritað með Todmobile tvær plötur. 

Þessir tónleikar eru hátíð og þakkarvottur til þeirra fjölmörgu aðdáenda sem hafa fylgt Todmobile í gegnum áratugina. Kvöldið verður einstakt tækifæri til að upplifa

tónlist sveitarinnar í nýjum og glæsilegum búningi og um leið fagna þeirri viðurkenningu sem heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna eru.

Tryggðu þér miða strax.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger