© 2026 Tix Miðasala
Reykholtskirkja
•
26. júlí
Miðaverð frá
4.500 kr.




Grand Finale – Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Á lokatónleikum Reykholtshátíðar koma nær allir flytjendur hátíðarinnar fram í fjölbreyttri dagskrá. Fyrri hluti tónleikanna býður áheyrendum upp á söng þriggja af okkar fremstu einsöngvurum, þeirra Arnheiðar Eiríksdóttur, Jóhanns Kristinssonar og Kristins Sigmundssonar, við meðleik Mathiasar Halvorsen. Munu þau flytja efnisskrá með söngverkum úr ýmsum áttum, bæði íslenskum og erlendum.
Eftir hlé stíga strengjaleikarar hátíðarinnar á svið og ljúka Reykholtshátíð – hinni þrítugustu í röðinni – með flutningi á hinum stórkostlega Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.
Flytjendur:
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Jóhann Kristinsson, barítón
Kristinn Sigmundsson, bassi
Mathias Susaas Halvorsen, píanó
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Pétur Björnsson, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is
Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 15:30
Miðaverð: 4.500 kr.

