© 2026 Tix Miðasala
Reykholtskirkja
•
25. júlí
Sala hefst
26. júní 2026, 12:00
(eftir 23 klukkustundir)




Söng- og kammertónleikar á Reykholtshátíð
Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran og píanóleikarinn Elena Postumi leiða fjölbreytta dagskrá þar sem rómantísk tónlist er í forgrunni. Á efnisskránni eru verk eftir þrjú af helstu tónskáldum 19. aldar, Johannes Brahms, Antonín Dvořák og Richard Strauss, sem hvert um sig túlka ást, söknuð og ljóðræna fegurð á sinn einstaka hátt.
Meðal verka kvöldsins eru Zwei Gesänge, op. 91, eftir Brahms fyrir mezzósópran, víólu og píanó – ein af innilegustu og persónulegustu tónsmíðum hans. Einnig verður flutt úrval úr Sígaunaljóðum Brahms auk Ástarljóða eftir Dvořák.
Á milli söngverkanna verður flutt Capriccio fyrir strengjasextett eftir Richard Strauss, sem hann samdi sem inngang að samnefndri óperu. Hér hljómar verkið í flutningi allra strengjaleikara hátíðarinnar.
Flytjendur:
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Elena Postumi, píanó
Pétur Björnsson, fiðla
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is
Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 19:30
Miðaverð: 4.500 kr.

