Verkefnastjórnun framkvæmdaverka – í stafrænum heimi - JTV

Hilton Reykjavík Nordica

29. október

Miðaverð frá

24.900 kr.

Verkefnastjórnun í framkvæmdum er fag í stöðugri þróun.

Stafræn verkfæri, gögn og gervigreind skapa okkur sífellt ný tækifæri til að bæta skipulag, samskipti og ákvarðanatöku.


Við tökum upp þráðinn frá ráðstefnunni 2025 og beinum nú sjónum okkar að því hvernig við getum nýtt þessar tækniframfarir á skynsamlegan hátt – án þess að missa sjónar á mannlega þættinum.

  DAGSKRÁ  
  

13:00 - 13:10
Velkomin
Opnunarræða og setning ráðstefnu
Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri JTV

13:10 – 13:50
From Site Capture to Project Intelligence: Managing Visual Data Across Construction Projects
Reality capture is becoming a core part of how construction teams document, coordinate and manage projects. Amy Luscombe, Customer Success Manager at DroneDeploy, will explore how aerial and ground capture, from drones and 360 walkthroughs to AI-powered analysis, is helping teams create a clearer, more consistent view of progress on site. She will share practical examples of how the technology is being used today, what has changed in recent years, and where reality capture is heading next.
Amy Luscombe, Customer Success Manager, EMEA at DroneDeploy

14:00 – 14:30
Er þetta nýjasta útgáfan?
Auður Ástráðsdóttir fjallar um stór framkvæmdaverkefni, þar sem verða til gríðarlegt magn upplýsinga — líkön, teikningar, skjöl, samþykktir, breytingar, samskipti og mælingar. Tæknin hefur breyst mikið á síðustu áratugum en stærstu áskoranirnar snúast enn um fólk, ábyrgð, ferla og traust: Hver á upplýsingarnar? Hvenær eru þær gildar? Hvernig tryggjum við rekjanleika? Og hvernig komum við í veg fyrir að mikilvæg verkefnaþekking hverfi í tölvupósti, Excel-skjölum eða með einstaklingum þegar verkefninu lýkur? Hvernig getur opinber verkkaupi byggt upp - ekki bara mannvirki, heldur þekkingu sem lifir með þeim.
Auður Ástráðsdóttir, BIM sérfræðingur | verkefnastoð hjá Landsvirkjun

14:30 – 14:45
Kaffihlé
Kaffi og kruðerí frammi

14:45 – 15:25
Human Connection: Beyond AI
We will explore why human connection is vitally important in collaborative project delivery like CM and CMAR. We will experience all the things that connect us as humans based on the latest research. We will also find out what AI cannot do and why that human component is the key to project success.
Brent Darnell, Founder and Owner at Brent Darnell International

15:30 – 16:00
Frá viðbrögðum til fyrirsjáanleika – þróun verkefnastjórnunar hjá Þarfaþingi
Erindið fjallar um hvernig verkefnastjórnun Þarfaþings hefur þróast samhliða vexti félagsins í sífellt stærri og flóknari verkefnum.
Farið verður yfir hvernig við höfum þróað verklag, stjórnun og eftirfylgni til að ná betri yfirsýn og meiri fyrirsjáanleika.
Sérstök áhersla verður á hvernig við reynum að horfa lengra fram í tímann, greina áhættur og hindranir áður en þær verða að vandamálum og vinna þannig markvisst og proaktívt.
Markmiðið er að sýna hvað þessi þróun hefur gert fyrir verkefnin okkar, starfsfólkið og félagið í heild.
Eggert Jónsson, framkvæmdastjóri Þarfaþings

16:00 – 16:30
Loddaralíðan (e. imposter syndrome)
Baldur Sigurðsson fjallar um loddaralíðan (imposter syndrome) og hvernig hún getur birst hjá fólki á öllum stigum samfélagsins. Hann fer yfir eigin reynslu af því að takast á við efasemdir um eigin getu þrátt fyrir árangur og reynslu, og deilir hagnýtum ráðum um hvernig t.d. tæknin hefur hjálpað til við að vinna gegn henni og til að efla sjálfstraust, líðan og árangur í starfi.
Baldur Sigurðsson, Verkefnastjóri hjá JTV

16:30 – 18:00
Tengsla kokteill
Kokteilar í lounge

Forsala stendur nú yfir og lýkur 31. ágúst.

Forsöluverð 19.900 kr.

Almenntverð 24.900 kr.


Síðast var uppselt og komust færri að en vildu.


Skráðu þig núna og tryggðu þér sæti.


Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna HÉR

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger