© 2026 Tix Miðasala
Hilton Reykjavík Nordica
•
29. október
Sala hefst
1. júlí 2026, 12:00
(eftir 6 daga)




Verkefnastjórnun framkvæmdaverka – í stafrænum heimi
Verkefnastjórnun framkvæmdaverka – í stafrænum heimi verður haldin 29 október á Hilton Reykjavík Nordica frá 13:00 - 17:30
Uppselt var á síðustu ráðstefnu og færri komust að en vildu.
Ísland stendur frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum – allt frá nýjum innviðum og opinberum byggingum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja. Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir: tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður.
Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og teiknaðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum. Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar.
Tryggðu þér miða.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna HÉR

