© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
9. maí
Miðaverð frá
5.000 kr.




Útgáfutónleikar Alexöndru Chernyshovu á Sígildum sunnudögum 9. maí 2027 í Norðurljósasal. Á tónleikunum verða frumfluttar nýjar útsetningar fyrir rödd og píanó úr óperunni Góðan daginn, frú forseti fyrir hlé, en eftir hlé verður frumflutt Sinfóníetta fyrir sópran, kór og hljómsveit, Magical Sky Iceland.
Alexandra Chernyshova ( f.1979) er afkastamikill tónlistarmaður. Hún hefur samið óperur, sinfóníur, kvikmyndatónlist, sönglög og barnalög. Bæði söngrödd hennar og tónsmíði hafa fengið athygli og hlotið viðurkenningar á alþjóðavettvangi. Á þessum tónleikunum gefst einstakt tækifæri til að upplifa tónlistarheim Alexöndru Chernyshovu. Fyrir hlé verða frumfluttar útsetningar fyrir rödd og píanó: aríur, dúettar, kvartett, kvintettar og kórar úr óperunni sem tileinkaðar fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta í heimunum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Óperan er sú þriðja sem Alexandra hefur samið og var frumflutt árið 2021. Hún er í þremur þáttum og er leikhúsverk. Óperuperlur verður fluttar við píanó undirleik úr Nótnabókinni fyrir rödd og píanó með átján lögum úr óperunni sem kom út nýlega.
N.1. Hvernig get ég? Því þú getur og ég gat. Hvað er að gerast?
Ljóð: Dr.Sigurð Ingólfsson/ Alexandra Chernyshova
Prologue fyrir kvennakvintett, blandaðan kór og aríoso Vigdísar fyrir sópran.
N.2. 17. júní 1944. Við erum frjáls
Ljóð: Dr. Sigurður Ingólfsson
Dúett Sigríðar og Finnboga fyrir sópran og bassa. Blandaður kór.
N.3. Parísarvalsinn
Ljóð: Dr.Sigurð Ingólfsson/ Alexandra Chernyshova
Aría Vigdísar og kvennakór.
N.4. Draumur
Ljóð: Ásta Björk Sveinsbjörnsdóttir
Aría Ragnars.
N.5. Skák og mát
Ljóð: Alexandra Chernyshova
Dúett Vígdísar og Ragnars.
N.6. Lofsöngur Magnúsar
Ljóð: Dr.Sigurð Ingólfsson/ Alexandra Chernyshova
Dúett Magnúsar og Vigdísar.
N.7. Móðurást. Til hamingju, Vigdís!
Ljóð: Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir / Alexandra Chernyshova
Aría Vígdísar og kvartett fyrir tvo sópran, bassa, tenór
N.8. Áfram stelpur!
Ljóð: Dr.Sigurður Ingólfsson / Alexandra Chernyshova
Baráttukonurnar kvintett og kvennakór.
N.9. Ég elska þig stormur
Ljóð: Hannes Hafstein
Kvennakvintett.
N.10. Gleym-mér-ei
Ljóð: Þorhallur Helgi Barðason / Alexandra Chernyshova
Epilogue fyrir blandaðan kór. Sungið a capella.
Eftir hlé verður flumlutt fyrsta Sinfonietta Alexöndru sem var samin árið 2015. Sinfonietta fyrir sópran, kór og hljómsveit er í fjórum þáttum. Verkið er innblásið af stórbrotinni náttúru Íslands — og þá sérstaklega dulúð og ljóma norðurljósanna — og vekur tilfinningu fyrir víðáttu, kyrrð og hljóðlátri undrun. Sinfóníettan er tileinkuð eiginmanni tónskáldsins, landslagsljósmyndaranum Jóni R. Hilmarssyni.
I. Norðurljósin — fyrsti þáttur úr sinfóníettunni Magical Sky Iceland
II. Vatn og stjörnur — annar þáttur úr sinfóníettunni Magical Sky Iceland
III. Týnd — þriðji þáttur úr sinfóníettunni Magical Sky Iceland
IV. Töfrandi ást á himninum — fjórði þáttur úr sinfóníettunni Magical Sky Iceland
Á tónleikunum koma fram úrvals óperusöngvarar, óperukór og hljóðfæraleikarar. Verið hjartanlega velkomin að upplifa einstakan tónlistarheim tónskáldsins Alexöndru Chernyshovu.

