Þór Breiðfjörð - Sögur hjartans

Harpa

1. október

Sala hefst

22. júní 2026, 10:00

(eftir 8 mínútur)

Sögur hjartans er 70 mínútna upplifun með Þór Breiðfjörð einum á sviðinu, rödd, píanó og gítar í forgrunni. Á þessum tímamótum, þegar Þór fagnar 55 ára afmæli sínu, býður hann áhorfendum í persónulega sögustund með glænýjum lögum, glóðvolgum beint úr hjartanu, ýmist á ensku eða íslensku. Þór syngur og segir frá því hvernig sögur og sagnamennska hafa verið kjarninn í lífi hans, allt frá æskuárum á Reykjaskóla í Hrútafirði og hjá skyldfólki í faðmi eyjanna á Breiðafirði til leikhússins, tónlistarinnar og þeirra mannlegu augnablika sem verða að lögum. Þór er meðal annars þekktur fyrir feril sinn í söngleikjum en að þessu sinni er á ferðinni tónlist söngvaskáldsins, framhald af plötunni Running Naked, sem tilnefnd var til ECMA-verðlauna í Kanada fyrir nær tveimur áratugum. Tónleikarnir eru innilegir, lifandi og einlægir, þar sem sögur um ást, minningar, missi, gleði og mannlega reynslu fléttast saman við nýja tónlist. Hér er engin hljómsveit, engin stór umgjörð, aðeins flytjandi, hljóðfæri og sögurnar sem hafa mótað hann. Sögur hjartans er kvöld fyrir þau sem vilja hlusta, finna og ferðast um lífið í gegnum söngva, frásagnir og slátt hjartans.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger