© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
16. september
Miðaverð frá
1.900 kr.




Bíóvaka á Vöku
Salurinn breytist í bíó þessa kvöldstund þar sem sýndar verða ólíkar kvikmyndir sem varpa ljósi á líf, störf og drauma þjóðlistafólks.
Kvöldið hefst á sýningu þjóðdansaheimildarmyndanna Gamli marsinn og Hávan dansinn hefjum með umræðum leiddum af sérfræðingum. Að þeim loknum gefst gestum tækifæri til að staldra við, njóta veitinga og spjalla saman áður en kvöldið heldur áfram með sýningu á A Mighty Wind, sem hefur fyrir löngu öðlast költ-stöðu meðal unnenda þjóðlagatónlistar – í senn ástarbréf til þjóðlagasenu sjöunda áratugarins í New York og húmorísk ádeila á hana.
Veitingar verða til sölu á milli sýninga, þar á meðal ljúffengar samlokur frá Króníkunni og drykkir.
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

