© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
10. janúar
Miðaverð frá
5.900 kr.




Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands & Tónlistarskólans á Akureyri.
Áttatíu ára afmælisári Tónlistarskólans á Akureyri lýkur í janúar 2027. Af því hátíðlega tilefni leiða Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskóli Akureyrar saman hesta sína og fagna nýju ári í álfhömrum Hamraborgar. Það verður heljarinnarveisla og mikiðum dýrðir - íslensk sönglög og rímnadansar stíga í vænginn við sveiflu Vínarvalsa svo kristalsljósakrónurnar dúa.
Er Dóná ísi lögð? Svar við því fæst á þessum tónleikum, sem enginn skyldi missa af.
Flutt verður tónlist eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson, Ingibjörgu Þorbergs, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Johann Strauss yngri.
Flytjendur:
Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri

