© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
10. janúar
Sala hefst
19. júní 2026, 11:00
(eftir 21 klukkustund)




Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands & Tónlistarskólans á Akureyri.
Áttatíu ára afmælisári Tónlistarskólans á Akureyri lýkur í janúar 2027. Af því hátíðlega tilefni leiða Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskóli Akureyrar saman hesta sína til að fagna nýju ári í álfhömrum Hamraborgar. Það verður herleg veisla og margt um dýrðir - íslensk sönglög og rímnadansar stíga í vænginn við sveiflu Vínarvalsa svo kristalsljósakrónurnar dúa.
Er Dóná ísi lögð? Svar við því fæst á þessum tónleikum, sem enginn skyldi missa af.
Flutt verður tónlist eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson, Ingibjörgu Þorbergs, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Johann Strauss yngri.
Flytjendur: Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri

