Seigla 2026: Hátíðarpassi

Harpa

7. ágúst

Miðaverð frá

12.000 kr.

Seigla er kammertónlistarhátíð í Hörpu sem býður upp á fjölbreytta viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er brotið upp. Hátíðin fer fram árlega aðra helgina í ágúst.

Í ár tekur dagskrá Seiglu mið af þemanu flétta. Við bjóðum flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta fléttast saman í skemmtilega heild. Fléttan getur birst á margvíslegan hátt. Hún getur falist í því hvernig samband mismunandi tónverka í efnisskrá fléttast saman í eitt, eða hún getur einnig komið fram í tónlistinni sjálfri, þar sem ólík stef, sögur, minningar eða hugmyndir tvinnast saman og skapa ný tengsl og merkingu. Við hvetjum þátttakendur til að kanna fléttuþemað á sinn eigin hátt, en markmiðið er að skapa rými þar sem ólíkir þræðir geta mæst, fléttast saman og orðið að einhverju nýju.

Seigla fer fram dagana 7.-9. ágúst og fara meginviðburðir hátíðarinnar fram í Norðurljósum og Hörpuhorni í Hörpu. Að auki verða viðburðir tengdir hátíðinni haldnir í bókabúðinni Skáldu og í Marshallhúsinu. Meðal flytjenda eru kammersveitin Elja, sem kemur fram bæði á laugardags- og sunnudagskvöld með annars vegar tónleika um Julius Eastman og hinsvegar um dægurlagatónlist útsetta úr óvæntum áttum. Þá bjóðum við danska kammerkórinn Det Unge VokalEnsemble velkominn sem syngur bæði íslenska og danska tónlist, og frumflytur verkið Phaethon eftir Veroniku Voetmann.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, meðal annars opna fjölskyldudagskrá undir heitinu Litla Seigla. Á Litlu Seiglu verður farið í snú snú með tónlist, það verður leikið með opna hljóðverkið Suð í Hörpuhorni og sungið saman í Norðurljósum í Tónlistarpúsli.

Hátíðarpassi Seiglu veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar. Hægt er að kaupa hátíðarpassa á forsöluverði, 12.000 kr., til og með 7. júlí. Eftir það hækkar verðið í 18.000 kr.

Dagskrá Seiglu 2026

Miðvikudagur 5. ágúst
17:00 - Útgáfuhóf Seiglazine, árlegs tímarits Seiglu, í Skáldu bókabúð

Föstudagur 7. ágúst
17:00 - Hátíðaropnun Seiglu í Hörpuhorni
18:00 - Vættir og óvættir í Norðurljósum
20:00 - Spjall og drykkir með flytjendum í Hörpuhorni

Laugardagur 8. ágúst
12:00 - LITLA SEIGLA - Suð í  Hörpuhorni
13:00 - Milli orða og anda - Det Unge VokalEnsemble í Norðurljósum
18:00 - Krókaleið um Julius Eastman - Elja í Norðurljósum
20:00 - Spjall og drykkir með flytjendum í Hörpuhorni
21:00 - Tími í rými í Norðurljósum

Sunnudagur 9. ágúst
13:00 - Þjóðgarðaflétta í Norðurljósum
14:00 - LITLA SEIGLA - Snú snú í Hörpuhorni
15:00 - LITLA SEIGLA - Tónlistarpúsl í Norðurljósum
17:00 - Mæðramáttur í Norðurljósum
19:00 - Dægurlög - Elja í Norðurljósum
21:00 - Lokapartí í Marshallhúsi, 4ðu hæð (TBC)

Flytjendur Seiglu 2026 · Ann-Kristin Sofroniou · Áshildur Haraldsdóttir · Det Unge VokalEnsemble · Elísabet Waage · Elja Kammersveit · Erna Vala Arnardóttir · Ewa Murawska · Harpa Ósk Björnsdóttir · Hildigunnur Einarsdóttir · Kristín Einarsdóttir Mäntylä · Lee Marable · Matthildur Anna Gísladóttir · Merve Ünlü · Miller-Porfiris Dúó · Nina Vanhoenacker · Sophie Kidwell · Stúdíó Suð · Vera Hjördís Matsdóttir · Wiesław Suruło ·

Erna Vala Arnardóttir · listrænn stjórnandi
Pétur Ernir Svavarsson · verkefnastjóri
Lee Marable · grafískur hönnuður
Erla Rut Árnadóttir · fjármálastjóri
Þorgrímur Þorsteinsson · tónmeistari

Verðskrá:
Hátíðarpassi
Forsöluverð til 7. júlí: 12.000kr
Almennt verð: 18.000kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 13.000kr - í miðasölu Hörpu

Stakir miðar
Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr

Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Íslenska Schumannfélaginu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger