© 2026 Tix Miðasala
Sena Live
•
24. október
Sala hefst
26. júní 2026, 11:00
(eftir 4 daga)




QUEENS OF THE STONE AGE Í HÖLLINNI 24. OKTÓBER
ALMENN SALA HEFST 26. JÚNÍ KL. 11
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 25. JÚNÍ KL. 11
SKRÁNING Í FORSÖLU HÉR
Sértónleikar, eingöngu fyrir Ísland, laugardaginn 24. október í Höllinni!
Það eru ekki margir viðburðir sem fá rokkaðdáendur til að staldra við. En þegar Queens of the Stone Age mæta til landsins eftir 25 ára bið er von á alvöru tónleikum
Það mætti segja að hér sé um að ræða langþráða endurfundi íslenskra rokkara við eina áhrifamestu rokksveit síðustu áratuga. Bandið hefur lengi viljað setja Ísland inn sem áfangastað á tónleikaferðum en ekki tekist. Þeir ákváðu að bíða ekki lengur og kýla á sérferð til Íslands. Þannig að hér er sannarlega um einstaka tónleika að ræða, settir sérstaklega upp fyrir Ísland og ekki partur af stærri túr.
QOTSA njóta sín best á sviðinu, eru þekktir fyrir magnaða tónleika og hafa aldrei verið betri. Það er því óhætt að lofa ógleymanlegu kvöldi.
Upphitun verður í höndum reykvísku sveitarinnar Virgin Orchestra sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu ár, bæði hér heima og erlendis.
Ekki missa af sérstökum Íslands tónleikum, með Queens of the Stone Age, í Höllinni!
MIÐAVERÐ
Gull sæti: 49.990 kr. (gult á mynd)*
A+ sæti: 39.990 kr. (fjólublátt á mynd)
A sæti: 34.990 kr. (bleikt á mynd)
B sæti: 29.990 kr. (grænt á mynd)
Stæði: 25.990 kr. (fyrir framan svið)
Hjólastólasvæði: 12.995 kr. (pallur á gólfi)**
*Gull sæti fylgir drykkur og sérinngangur.
**Hjólastólasvæði eru seld tvö saman, þar sem annar miðinn er fyrir fylgdarfólk.
Sjá mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live
Um Queens of the Stone Age
Queens of the Stone Age er skipuð þeim Joshua Homme, Troy Van Leeuwen, Michael Shuman, Dean Fertita og trommuleikaranum Jon Theodore. Á glæsilegum 30 ára ferli hefur sveitin skipað sér sess sem einkraftmesta og frumlegasta rödd rokksins. Krafturinn nýtur sín best á sviðinu, enda eru þeir þekktir fyrir að leggja allt í sölurnar á tónleikum sínum og hafa aldrei verið betri. Eins og NME orðaði það í nýlegri umfjöllun um Catacom túrinn þá eru þeir þessa dagana að “...ná nýjum hæðum!”.
QOTSA báðu sérstaklega um að fá að spila á Íslandi, mæta með gríðarlega orku og bestu lögin frá öllum ferlinum. Einstakt kvöld er í vændum.
Um Virgin Orchestra
Virgin Orchestra sækir innblástur í post-pönk, raftónlist, dreampop og hávaðarokk og fléttar saman í kraftmikinn og heillandi hljóm. Sveitina skipa þau Rún, Starri og Stefanía og hefur hún verið á mikilli siglingu undanfarin ár, bæði hér heima og erlendis, í kjölfar útgáfu Fragments árið 2023 og EP-plötunnar Let It Burn árið 2025.
Þau voru sérstaklega valin af QOTSA til að hita upp.

