© 2026 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
9 sýningar
Miðaverð frá
0 kr.




Nýtt og áhrifamikið leikrit eftir Ragnar Bragason – magnþrungin saga um lífsbaráttu og áföll sem mótað hafa kynslóðir
Í litlu samfélagi á Vestfjörðum fléttast örlög fjölskyldna saman, mótuð af sjóslysum og missi. Þrátt fyrir brotsjói lífsins blómstra ástin og lífsgleðin – þar til örlagastund rennur upp á ný.
Rithöfundurinn Lea leiðir okkur í þorpið þar sem hún ólst upp, aftur til sjöunda áratugarins, þegar hún var lítil stelpa og vinkonurnar gátu í laumi fylgst með brasi fullorðna fólksins og séð ýmislegt sem kannski enginn átti að sjá. Samskipti fólksins eru mörkuð af hörku og blíðu, söknuði og þrá, harmi og draumum. Yfir þorspslífinu grúfir sársauki fortíðarinnar, í þögninni sem umlykur allt.
Þegar aftakaveður skellur á og enn á ný berst neyðarkall frá báti í háska bíða konur og börn í landi á milli vonar og ótta. En vinnan heldur áfram, færibandið stöðvast aldrei og spurningar vakna um hverjar séu í raun hetjur hafsins.
Ragnar Bragason er þekktur fyrir fjölda leiksýninga, kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða sem hafa hlotið margvísleg verðlaun. Má þar nefna Felix & Klöru, Gullregn, Málmhaus og Vaktaseríurnar. Rætur Ragnars liggja í sjávarþorpi á Vestfjörðum og hér leitar hann til upprunans.
Leikarar
Leikarar: Kristín Þóra Haraldsdóttir, Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Hallgrímur Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Jakob van Oosterhout, Pálmi Gestsson, Selma Rán Lima, Þröstur Leó Gunnarsson og fleiri.
Listrænir stjórnendur
Leikstjóri
Ragnar Bragason
Leimyndahöfundur
Elín Hansdóttir
Búningahöfundur
Helga Rós Hannam
Ljósahönnuður
Þórður Orri Pétursson
Hljóðhönnun
Þóroddur Ingvarsson

