SexEd - Kabarett

Borgarleikhúsið

3. - 9. október

Miðaverð frá

7.200 kr.

 Sex Ed er fullorðinssirkus og kynfræðslukarnival þar sem íslenska kabarettsenan mætir óbeisluðum brúðusirkus Visceral Abstractions frá New York. Hópurinn lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem hefur frá 2017 blandað saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Í þessari sýningu er mannslíkaminn, löngunin og samskiptin tekin í sundur og sett saman aftur með ódýrum bröndurum, fjölleikahússspennu og óvæntri blíðu.

 Sex Ed hefur verið þróuð í nokkrum útgáfum í New York og meðal annars sýnd á The Slipper Room, einum þekktasta kabarettstað borgarinnar. Nú fær sýningin íslenskan líkama, íslenska rödd og nýtt samhengi á litla sviðinu, þar sem lofthæðin er nýtt til hins ítrasta. Útkoman er fræðsla sem gleymir aldrei að skemmta – skökk, líkamleg, forvitin og ófeimin.

 

Leikstjórn: Margrét Erla Maack

Aðstoðarleikstjóri: Juanita Cardenas

Upprunaleg hugmynd: Juanita Cardenas

Dramatúrg: Sigurður „Gógó” Starr

Leikmynd og búningar: Juanita Cardenas, Visceral Abstractions og hópurinn

Leikgervi: Sigurður „Gógó” Starr og Visceral Abstractions

Brúður: Visceral Abstractions með hjálp frá Pilkington Props

Sviðshreyfingar: Hópurinn

Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson

Sýningarstjórn: Vigdís Perla Maack

Yfirmaður loftfimleikaöryggis: Thomas Burke

 

Höfundar, leikarar, dansarar og sirkusfólk:

Dana Abrassart, Jon Joni, Jón Sigurður Gunnarsson, Juanita Cardenas, Margrét Erla Maack, Róberta Michelle Hall, Ryan Shinji, Sara Líf Magnúsdóttir, Sally Cowdin, Sindri Freyja Bjarnabur, Sigurður „Gógó“ Starr, Tamara Ochoa, Thomas Burke.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger