© 2026 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
6 sýningar
Sala hefst
5. júlí 2026, 12:00
(eftir 4 daga)




Árið er 1984 og Nanna stendur á þeim ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur, Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá?
María Reyndal er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk á borð við Er ég mamma mín og Með guð í vasanum. Í Svikasögum tekst hún á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni með húmorinn og hlýjuna að vopni.
María leiðir magnaðan leikhóp skipaðan þeim Berglindi Öldu, Hákoni Jóhannessyni, Birnu Pétursdóttur, Mikael Kaaber, Kötlu Margréti og Vilhelm Neto, ásamt ungstirnunum Rebeccu Liv Biraghi og Viktoríu Dalitso. Óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök.
Höfundur og leikstjóri: María Reyndal
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Leikarar:
Berglind Alda Ástþórsdóttir
Birna Pétursdóttir
Hákon Jóhannesson
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Mikael Kaaber
Rebecca Lív Biraghi
Viktoría Dalitso Þráinsdóttir
Vilhelm Neto

