© 2026 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
29. maí
Miðaverð frá
9.990 kr.




Góð lög, skemmtilegar sögur og frábærir listamenn í toppformi
Helgi Björns og Ragga Gísla eru tvö stórveldi í íslenskri tónlistarsögu og nú leggja þau fram krafta sína í stuttri og einstakri tónleikaröð.
Sungin verða lög sem þjóðin þekkir og elskar, sögur sagðar og rifjuð verða upp minnisstæð móment sem eru ekki á allra vitorði.
Einhverjir muna kannski eftir því að þau hafa áður leitt saman hesta sína og í því tilviki leikið ástfangið par – bæði á sviði og á hvíta tjaldinu.
Nú fær sú kemistría að njóta sín aftur – með tónlist og tali.
Með þeim á sviði verða tveir af okkar fremstu hljóðfæraleikurum, Stefán Már Magnússon og Tómas Jónsson, sem munu setja sinn einstaka svip á kvöldin.
18 ára aldurstakmark.

