gregorian grace

Harpa

2. janúar

Miðaverð frá

5.990 kr.

Eftir tónleikaferðir um Þýskaland, Danmörku, Pólland og Holland, kemur pólska hljómsveitin gregorian grace loks fram á Íslandi. Sjö söngvarar og lifandi hljómsveit leiða áheyrendur inn í dularfullan heim gregoríansks söngs með sínum einstaka hljómi.

Á tónleikunum má njóta dásamlegs samhljóms fornra laglína og ólíkra tónlistarstefna. Fyrri hluti tónleikanna er helgaður ekta miðaldatónlist, en auk hennar hljóma heimsþekktir dægur-, blús- og rokkslagarar á borð við Ameno, Adiemus, Sky Full of Stars og Sound of Silence, ásamt mörgum öðrum kunnuglegum – og stundum óvæntum – lögum. Í bland við hinn dularfulla gregoríanska söng verða þessi verk að sannkölluðum listaverkum þetta kvöld!

Söngvararnir og hljóðfæraleikararnir eru í fremstu röð pólskra tónlistarmanna og hafa starfað í helstu listamiðstöðvum Póllands og víðar. Áheyrendur fá að upplifa allt svið mannlegrar raddar: allt frá tærum sópran og þjóðlegum raddbeitingum yfir í mjúkan kontratenór og djúpan, dularfullan bassa. Ímyndunaraflið er enn fremur virkjað með kraftmiklum spuna lifandi hljómsveitar þar sem hljómar raf-fiðla, klarínett, hljómborð, rafmagnsgítar og slagverk, auk hljóðfæra frá miðöldum.

Tónleikar gregorian grace eru einstakt tækifæri til að hverfa inn í viðkvæman hljóðheim gregoríansks söngs, uppgötva töfra miðaldahljóma og heyra þekkta tónlist í nýju ljósi. Þetta er upplifun sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger