Nemendasýning Dansakademíunnar

Borgarleikhúsið

2. - 3. maí

Miðaverð frá

3.500 kr.

Nemendasýning Dansakademíunnar í Borgarleikhúsinu árið 2026 ber yfirheitið Er ég verð stór. Sýningin er sjálfskapað ævintýri þar sem nemendur fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í gegnum dans, söng og leik. Sýningin verður fjölbreytt og skemmtileg þar sem skólakrakkar telja upp sína drauma og framtíðaráætlanir. Sumum dreymir um að verða ofurhetjur á meðan öðrum dreymir um að vera vísindamaður eða lögga… En veit maður einhverntímann hvað manni langar í raun og veru að verða þegar maður er orðin stór?

Við leggjum ríka áherslu á að nemendur fái að upplifa töfra leikhússins og hafa kennarar skólans unnið hörðum höndum að gera upplifunina eftirminnilega og skemmtilega fyrir nemendur. Á sýningunum koma fram allir nemendur skólans frá 4ra ára aldri.

Forráðamenn eiga allir að vera búnir að fá skilaboð á Abler með öllum upplýsingum um hvenær barn þeirra á að sýna. Allir hópar 6 ára og eldri sýna á báðum sýningum

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger