BRIM-BALL í Tónabíó

Tónabíó, Skipholt 33

10. apríl

Miðaverð frá

2.500 kr.

  BRIM-BALL í Tónabíó  
  
Sörfhljómsveit allra landsmanna, Brim, heldur ball í nýopnuðum sal Tónabíós.

Þessi glæsilegi retro salur er frá 1962 sem er einmitt uppáhaldsár hljómsveitarmeðlima en Brim hefur frá upphafi einbeitt sér þessum fyrstu árum brimbrettarokksins.
Það var því ákveðið að skella í skemmtilegt sörf-ball í Tónabíó núna strax eftir páska og hafa lúkkið í anda “Enchantment Under The Sea” skólaballsins í Back To The Future.

Surf-Doom rokkararnir í Godchilla opna kvöldið með sínum lokkandi neðansjávarhljómi. Nýlega kom út meistarverkið þeirra Psionic Dreams á vínylplötu hjá Smekkleysu sem hefur hlotið lof gagnrýnenda um heim allan.
Þar á eftir tekur La Dimensión við og léttir stemmninguna með sinni gítardrifnu cumbia-stuðtónlist. Carlos Guarneros ásamt félögum sínum í La Dimensión hefur staðið fyrir sprengingu í áhuga á cumbia-tónlist á Íslandi. Meðal annars með kvöldum á veitingastaðnum sínum La Poblana, í Tónabíó og hátíðinni Kumbiavík.
Goðsagnakennda sörfsveitin Brim klárar svo ballið með sínu einstaklega skemmtilega og hressa instrumental sörf-rokki. Brim starfrækja þeir Bibbi Barti, Kafteinn Skeggi, Óli Raki og Danni Bít en hún var áberandi á árunum 1995-1997 og gaf út plötuna "Hafmeyjur og hanastél" hjá Smekkleysu árið 1996 (fyrir 30 árum síðan). Brim er þekkt fyrir óviðjafnanlega stemmningu á böllum og tónleikum og skærbláu hljómsveitarbúningar þeirra renna fólki seint úr minni.

Forsala aðgöngumiða er á Tix.is en miðaverð er 2500 kr. í forsölu og 3000 kr. við hurð.
Það verður LIMBÓ-KEPPNI og verðlaun verða gefin þeim sem mæta í flottustu retro-fötunum.
Komið með dansskóna með ykkur og ekki er verra að vera í Hawaii-skyrtu.
SÖRF'S ÖPP!!!Sörfhljómsveit allra landsmanna, Brim, heldur ball í nýopnuðum sal Tónabíós.

SÖRF'S ÖPP!!!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger