Geimsteinn 50 ára - Bjartmar Guðlaugsson

Reykjanesbær

22. apríl

Miðaverð frá

6.000 kr.

Geimsteinn 50 ára - Bjartmar Guðlaugsson

Bjartmar Guðlaugsson mætir í skúrinn á Skólavegi 12 í tilefni af 50 ára afmæli Geimsteins. Fyrsta plata Bjartmars var tekin upp í upptökuheimili Geimsteins árið 1984 og síðan þá hefur þessi sagnaþulur í íslenskri tónlist markað djúp spor í sálarvitund þjóðarinnar. Honum til halds og trausts verða bræðurnir, Júlíus og Baldur, sem hafa unnið með Bjartmari á hans langa og farsæla ferli. Fleiri munu koma við sögu og má þá helst nefna hinn sífulla Sumarliða, Hippann, Rokkskáldið og öll týnda kynslóðin verður kölluð til. Þannig týnist tíminn með skemmtilegum sögum og söng. Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger