© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
12. - 13. júní
Sala hefst
1. apríl 2026, 08:00
(eftir 2 daga)




Í þessum margslungna og gáskafulla einleik fer leikarinn og aktivistinn Khalid Abdalla
(United 93, The Kite Runner, The Crown) með okkur í óvænt ferðalag um eigin sögu
í landslagi stórbrotinna heimsviðburða. Innblásturinn sækir hann í þátttöku sína í
egypsku byltingunni 2011 og upplifunina af gagnbyltingunni sem fylgdi í kjölfarið.
Khalid tekur á sögu nýlendustefnunnar og niðurbroti hennar, vináttu og missi,
mótmælum og uppreisn gegn valdhöfum um víða veröld sem og ofbeldinu á Gaza eftir
atburðina 7. október 2023. Hann fléttar hið persónulega og hið pólitíska saman í eins
konar andævisögu og spyr hvernig við höfum komist á þennan stað og ekki síður
hvernig finna megi eigin rödd í völundarhúsi sögunnar.
Höfundur & flytjandi: Khalid Abdalla
Leikstjóri: Omar Elerian
Leikmynd & búningar: Ti Green
Sviðshreyfingar: Omar Rajeh
Ljósahönnun: Jackie Shemesh
Hljóðhönnun: Panos Chountoulidis
Myndbandshönnun: Sarah Readman
Dramatúrg: Ruth Little
Ráðgjöf við handrit: Chris Thorpe
Framleiðslustjóri: Milorad Zakula
Sviðsstjórn: Hannah Clare
Tæknileg sviðsstjórn: Rachel Bowen
Framleiðandi: Fuel
Ljósmynd: Helen Murray
Styrkt af Arts Council England & CVC.
Battersea Arts Centre

