© 2026 Tix Miðasala
Samkomuhúsið á Húsavík
•
1. apríl
Miðaverð frá
2.000 kr.




Barnvænni Rocky Horror sýning – fyrir yngri áhorfendur.
Vegna mikillar eftirspurnar kynnum við með stolti sérstaka, barnvæna útgáfu af Rocky Horror!
Hér fær yngra leikhúsfólk tækifæri til að upplifa litríkan, skemmtilegan og aðeins mildari heim sýningarinnar – án grófu atriðanna sem fylgja upprunalegu útgáfunni.
Sýningin fer fram miðvikudaginn 1. apríl kl. 18:00 – og athugið að þetta er eina tækifærið til að sjá þessa útgáfu! Miðaverð er 2.000 kr.
Sýningin er styttri en hefðbundin sýning, sérstaklega aðlöguð að yngri áhorfendum. Aðgangur:
• Börn í 1.–5. bekk eru velkomin í fylgd með fullorðnum.
• Börn í 6.–7. bekk mega koma án fylgdar.
Athugið að allar aðrar sýningar okkar á Rocky Horror eru ekki ætlaðar börnum yngri en 14 ára. Komið og upplifið töfra, tónlist og gleði í öruggri og fjölskylduvænni útgáfu. – þetta verður skemmtileg kvöldstund fyrir bæði börn og fullorðna!

