Ingoma! A Revolution in Rythm

Borgarleikhúsið

11. - 12. júní

Sala hefst

1. apríl 2026, 10:00

(eftir 5 daga)

Sannkölluð gleðisprengja með trommuleik, dansi og söng frá hinni heimsþekktu sveit Ingoma Nshya, fyrstu kvennatrommusveit Rúanda.

Í Rúanda þýðir orðið ingoma bæði vald og tromma. Árið 2004 var hópur kvenna að leita leiða til að endurheimta styrk, reisn og von í kjölfar þjóðarmorðsins í landinu. Þær stigu byltingarkennt skref og brutu aldagamlar hefðir sem meinuðu konum að svo mikið sem snerta trommu. Úr varð Ingoma Nshya, fyrsta kvennatrommusveit Rúanda. Síðan þá hefur sveitin öðlast heimsfræð auk þess að stuðla að auknu jafnrétti og sjálfstæði kvenna með gleði og valdeflingu að leiðarljósi.

Sýningin er saga þessara einstöku kvenna í formi tónlistar og frásagnar. Stofnandi hópsins, rúanska listakonan Kiki Katese, og rúansk-kanadíska sópransöngkonan Ineza Mugisha sem flúði þjóðarmorðið með fjölskyldu sinni leiða áhorfendur í gegnum þessa stórbrotnu tónlistarsýningu þar sem bæði ný og klassísk tónlist Austur- og Vestur-Afríku fær að njóta sín. Undir heimsklassatrommuleik heyrum við sögurnar á bak við tónlistina; sögur um sigra og sorgir, flótta undan ofbeldi og sanna hamingju.

Höfundur texta, flytjandi & meðhöfundur: Gakire Katese Odile “Kikiˮ (RW) Leikstjóri og meðhöfundur: Ross Manson (CA)

Tónlist: Ingoma Nshya (RW)

Flytjandi: Ineza Mugisha (CA)

Ingoma Nshya, kvennatrommusveit Rúanda: Ingabire Rose (RW), Kamariza Médiatrice (RW), Mukamugema Chantal (RW), Mukanyandwi Claudine (RW), Mukeshimana Alphonsine (RW), Mushimiyimana Marguerite (RW), Uwamariya Clémentine (RW), Uwintije Clémentine (RW), Uwizerwa Marie Noella (RW)

Skuggaleikhús: Kristine White (CA) & Katese Aurore (RW)

Framleiðendur: Women Cultural Center í Rúanda Volcano (CA) í samstarfi við Ndabaga Collective

Meðframleiðendur:

Edinburgh International Festival

ArtsEmerson í Boston

Perelman Performing Arts Center í New York (PAC NYC)

University of Georgia Performing Arts

Luminato Festival Toronto

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger