© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
19. apríl
Miðaverð frá
3.500 kr.




Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Alessandra Pompili píanóleikari leika rómantísk tónverk hjónanna Clöru og Robert Schumann og samtímamanns þeirra Norbert Bürgmuller.
Frumflutt verða tvö sönglög í hljóðfæraútsetningu eftir Jón Hlöðver Áskelsson en þau heita Hamingja og Akureyri. Glænýtt verk sem nefnist Bútasaumur eftir John Speight verður einnig á dagskrá.
Gondóla verk eftir Mendelssohn og Lizst fyrir sóló píanó mun hljóma sem og hið bráðfjöruga verk Tilbrigði um Karnival í Feneyjum eftir Paul Jeanjean.
Einar Jóhannesson fæddist í Reykjavík og lærði á klarínettu við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Gunnari Egilson og síðar við The Royal College of Music í London hjá Bernard Walton og John McCaw. Þar hlotnuðust honum hin virtu Frederick Thurston verðlaun sem veitt eru í minningu þess áhrifamikla enska klarínettuleikara. Árið 1976 vann Einar samkeppni í London um að taka þátt í verkefninu Live Music Now sem Sir Yehudy Menuhin stofnaði og gaf ungu tónlistarfólki tækifæri til að halda tónleika víða um England. Þremur árum síðar hlaut hann Sonning verðlaunin dönsku sem veitt voru ungu norrænu tónlistarfólki. Íslensk tónskáld hafa verið dugleg við að semja verk handa Einari og hefur hann komið fram á tónlistarhátíðum um allan heim sem einleikari og flytjandi í kammermúsík.
Einar var leiðandi klarínettuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúma þrjá áratugi, frá 1980 til 2012. Hann er einn af stofnendum Blásarakvintetts Reykjavíkur og er félagi í miðaldasönghópnum Voces Thules.
Alessandra Pompili fæddist í Róm og nam þar píanóleik undir handleiðslu hins virta Argentíska píanóleikara og tónskálds Sergio Calligaris og útskrifaðist með láði frá L’Aquila Tónlistarakademíunni. Þaðan hélt hún til Parísar og nam hjá Arnaldo Graziosi og Marcella Crudeli við École Normale de Musique og lauk því námi einnig með láði. Hún gaf sér tíma eftir það til að sinna öðrum áhugamálum og hóf nám í listasögu og fornleifafræði. Síðan fór hún til Englands og lauk meistaranámi í fornleifafræði við Manchester University. Hún lauk svo doktorsnámi við sama skóla í listasögu og fornleifafræði.
Alessandra er staðarpíanisti hjá Dante Alighieri félaginu í Manchester og hefur nýlega verið ráðin sem tónlistarráðgjafi hjá Mirak kammermúsíkfélaginu í Arlington í Bandaríkjunum. Hún hefur víða haldið tónleika meðal annars á Ítalíu, Bretlandi, Ungverjalandi, Íslandi, Þýskalandi, Póllandi og í Bandaríkjunum.

