© 2026 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
16. - 21. apríl
Sala hefst
25. mars 2026, 12:00
(eftir 23 klukkustundir)




Tónlist og textar eftir Cole Porter
Upphaflegt handrit eftir P.G. Wodehouse & Guy Bolton og Howard Lindsay & Russel Crouse Ný leikgerð eftir Timothy Crouse & John Weidman
í leikstjórn Orra Hugins Ágústssonar
Þýðing: Leiktextar: Orri Huginn Ágústsson / Söngtextar: Orri Huginn Ágústsson og Þór Breiðfjörð.
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýnir í ár hinn sívinsæla Broadway-söngleik Anything Goes – Draumur í dós á litla sviði Borgarleikhússins. Hér er á ferðinni sprenghlægileg og glæsileg sýning full af dansi, söng og ógleymanlegum lögum eftir einn merkasta lagahöfund Broadway, Cole Porter.
Sagan gerist um borð í glæstu skemmtiferðaskipi á leið frá New York til London þar sem ástin, misskilningur, dulargervi og skemmtilegar uppákomur fléttast saman í hraðsiglandi og hótfyndinni sögu.
Með sígildum lögum á borð við Anything Goes, I Get a Kick Out of You, You’re the Top og Blow, Gabriel, Blow hefur verkið heillað áhorfendur í nær heila öld.
Nemendur söngleikjadeildarinnar takast hér á við glæsilegan og sígrænan Broadway-söngleik þar sem söngur, leikur og dans sameinast í kraftmikilli sviðsuppfærslu.
Verkið á sér stað í kreppunni miklu þegar allt er að fara norður og niður; svo fólkið fer á skemmtiferðaskip til að freista gæfunnar, flýja eða gleyma sér.
Komið í Borgarleikhúsið og njótið þessa líflega og skemmtilega söngleikjar með okkur!
Listrænt teymi
Leikstjóri: Orri Huginn Ágústsson
Tónlistarstjórn: Ingvar Alfreðsson
Aðstoð við tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon
Danshöfundar: Rebecca Hidalgo og Gabriel Marling Rideout
Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason
Hljóðhönnun: Björgvin Sigvaldason
Leikmynd, leikgervi og búningar: Leikhópurinn
Stjórnandi deildarinnar: Þór Breiðfjörð
Kennarar:
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Þýðing: Orri Huginn Ágústsson og Þór Breiðfjörð
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz er sú elsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur í rúman áratug byggt upp öfluga menntun fyrir upprennandi söngleikara. Nemendur hafa haldið áfram í háskólanám í leiklist og söngleikjum bæði hér heima og erlendis.
Söngskólinn byggir á arfleifð Scala-söngvarans Sigga Demm (Vincenso Maria Demetz) sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskt sönglíf. Í dag heldur skólinn áfram að rækta hæfileikaríka listamenn í söng, leik og sviðslistum.
Umsóknir í söngleikjadeild og einsöngsdeild fyrir næsta skólaár:
www.songskoli.is
Þessi nemendasýning af ANYTHING GOES er samkvæmt samkomulagi við Concord Theatricals Ltd. fyrir hönd Tams-Witmark LLC.
www.concordtheatricals.co.uk

