© 2026 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
28. - 29. apríl
Sala hefst
25. mars 2026, 12:00
(eftir 2 daga)




Lísa í Undralandi - Vorsýning Dansgarðsins Óskanda verður 28. apríl kl. 15.30 og kl. 18:00.
Dansverkið fjallar um forvitna stelpu sem heitir Lísa og ævintýri hennar. Lísa er með vinum sínum þegar hún tekur eftir hvítri kanínu og ákveður að elta hana. Lísa eltir kanínuna, dettur ofan í holu og lendir í töfralandi sem heitir Undraland. Í Undralandi hittir Lísa margar spennandi verur, m.a. kanínur, páskaliljur, sveppi, flamingos, bollakökur og lirfur.
Lísa í Undralandi er skemmtilegt ævintýri, fullt af töfrum. Verkið er blanda af klassískum ballett og nútímalistdansi.
Dansverkið er byggt á skáldsögunni Lísu í Undralandi, eftir Lewis Carroll.

