Queer Situations – alþjóðleg hinsegin bókmenntahátíð 14. - 17. maí

14. maí

Miðaverð frá

2.750 kr.

Queer Situations – alþjóðleg hinsegin bókmenntahátíð.
Haldin í Reykjavík og Kópavogi dagana 14 - 17. maí 2026.

Queer Situations er bókmenntahátíð sem leggur áherslu á hinsegin bókmenntir í fleiri en einum skilningi: Bækur höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin en einnig bókmenntir sem falla út fyrir meginstrauminn.

Queer Situations leggur kapp á að hátíðin sé aðgengileg og mun vinna að því að auðvelda samtal áhorfenda við höfunda hátíðarinnar. Hluti af hátíðinni er að skapa samfélag, tækifæri til þess að hanga saman á milli viðburða, rabba og greina líf og tíma.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu hátíðarinnar sem og öll dagskráin.

Gott aðgengi fyrir hjólastóla er á öllum viðburðum hátíðarinnar.

Armbandið veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar sem fara fram dagana 14-17 maí. Sumir viðburðir eru auk þess „off venue“.

Dagskráin er enn í mótun, fylgist með á vefsíðu hátíðarinnar: www.queersituations.is

Fimmtudagur 14. maí – Tjarnarbíó

17-19: – Fræðidagskrá:

Jenny Björklund (SE): What is a queer reading? – fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Hafdís Erla: Tíminn og veiran. Brot úr sögu HIV á Íslandi.

Ásta Kristín Benediktsdóttir: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi.

20:30-23:00 – The Reality Hits Back:

Edy Poppy og Julian Blaue (NO).

Verkið er á samnefndri bók rithöfundarins Edy Poppy (Virkeligheten slår tilbake) sem flytur verkið ásamt maka sínum Julian Blaue. Saman eru þau gjörningalistamenn og hjónaband þeirra óhefðbundið. Verk þeirra kanna mörk listar og veruleika og rýna í samfélagslegan strúktúr, hlutverk listarinnar og mörk einstaklings og samfélags.


Föstudagur 15. maí – Salurinn Kópavogi.

Húsið opnar: 16:00

Hinsegin bókmenntabarsvar og Happy Hour á barnum.

Umsjón: Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir

Lee Langvad (DK)

Umræðustjórn: Snædís Björnsdóttir

Íslenskir höfundar:

Tilkynnt síðar.

Alana S. Portero (ES)

Umræðustjórn: Lóa Björk Björnsdóttir


Laugardagurinn 16. maí – Salurinn í Kópavogi

Húsið opnar kl. 12:00

Langborðsumræður og Happy hour.

Umsjón: Helga Dögg Ólafsdóttir/Garg bókabúð

Beinir Bergsson (FO)

Umræðustjórn:

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
Gjörningur/Performance

Ásrún Magnúsdóttir

Danceyoke

Carmen Maria Machado (US)

Umræðustjórn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir


Partý

Sunnudagur 17. maí – off venue

TBA

Queer Sauna o.fl.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger