© 2026 Tix Miðasala
Fantasía – Vinnustofa Kjarvals
•
22. apríl
Sala hefst
23. mars 2026, 10:00
(eftir 2 daga)




GÓSS á Fantasíu
Tríóið Góss er skipað bræðrunum Sigurði og Guðmundi Óskari Guðmundssonum og Sigríði Thorlacius vinkonu þeirra. Hljómsveitin var stofnuð árið 2017 gagngert til þess að meðlimir gætu pakkað í bíl og komist út fyrir borgina, til þess að flakka um sveitirnar og spila músík og hitta fólk. Þau hafa undanfarin ár rúntað spilandi og syngjandi þvers og kruss um landið, réttsælis sem og rangsælis. Og best líður þeim úti í móa. Eina plötu eiga þau í sínum fórum, plötuna Góssentíð, sem kom út 2019 og hlaut mikið lof. Prógramið eru lög héðan og þaðan – frumsamin lög og tökulög, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög. Allt í bland og öllu skellt í einhverskonar þríraddaðan sveitabúning.

