© 2026 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
22. maí
Sala hefst
18. mars 2026, 10:00
(eftir 14 klukkustundir)




Strákarnir í Hvanndalsbræðrum eru að keyra sig í gang fyrir árið 2026 og verða þann 22. maí í Bæjarbíó Hafnarfirði, loksins segir einhver…..einn amk.
Það verður engu til sparað við að gera tónleikana sem glæsilegasta. Prógrammið hefur verið tekið til gagngerðar endurskoðunar og gamlir hundar dregnir á flot, eftir talsvert hlé.
Þetta verður allt á léttu nótunum eins og iðulega og vonast bræðurnir til að sjá gömul og ný andlit, allir hjartanlega velkomnir.
18 ára aldurstakmark.

