© 2026 Tix Miðasala
Digido, Borgartún 29
•
29. október
Miðaverð frá
69.900 kr.




Efnisgerð fyrir samfélagsmiðla (kennt á ensku)
29. og 30.október 2026
Fyrir hverja?
Námskeiðið Samfélagsmiðlar og efnisgerð er tilvalið fyrir markaðsfólk, frumkvöðla og alla þá sem vilja skerpa á færni sinni í stýringu samfélagsmiðla og efnisgerð til að ná framúrskarandi árangri með grípandi efni og myndböndum. Þetta er hagnýtt námskeið þar sem þú munt læra að framleiða stutt myndbönd (t.d. Reels og TikToks) og carousel-færslur á skilvirkan hátt, tileinka þér bestu starfsvenjur í stýringu samfélagsmiðla og birtingu efnis og móta þína eigin samfélagsmiðlastefnu sem styður við vörumerkið þitt.
Ath. að námskeiðið er kennt á ensku.
Á námskeiðinu munu þátttakendur læra
Hvað virkar á samfélagsmiðlum árið 2026 og hvers konar efni þú ættir að setja í forgang
Mótun samfélagsmiðlastefnu sem styður við vörumerkið eða fyrirtækið þitt
Vinsæl snið fyrir myndbönd og carousel-færslur á samfélagsmiðlum
Gerð efnisdagatals (e. content calendar) og uppbygging skilvirks og sjálfbærs vinnuferlis í efnisgerð
Bestu starfsvenjur í dreifingu efnis og stýringu samfélagsmiðla
Hagnýt ráð um efnisgerð, allt frá hugmynd að upptöku, klippingu og birtingu
Nýting gervigreindar til að gera efnisgerðina skilvirkari
Um kennara
Cathrine Frederiksen hefur starfað sem sérfræðingur í efnisgerð fyrir samfélagsmiðla í yfir sex ár. Hún hefur unnið efni fyrir vörumerki á borð við Guide to Iceland, Bláa lónið og Íslandsstofu.
Aðrar upplýsingar
Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu.
Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

