Salsa ball með Barrio 27

Iceland Parliament Hotel

14. ágúst

Miðaverð frá

4.900 kr.

Undirbúðu þig fyrir heitt salsakvöld í hjarta Reykjavíkur!

Nælið ykkur í super early bird miða á viðburðinn. Takmarkað magn!!!

Barrio 27 er 16 manna salsahljómsveit stofnuð árið 2024 af slagverksleikaranum Alexöndru Rós Norðkvist. Hljómsveitin er þekkt fyrir kraftmikla framkomu og einstakt prógramm sem fær dansgólfið til að lifna við. Markmið sveitarinnar er að efla dansmenningu á Íslandi – og nú gefst þér tækifæri til að taka þátt.

Þann 14. ágúst 2026 heldur Barrio 27 sitt fyrsta alvöru salsaball í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll (gamla NASA). Kvöldið hefst með stuttri byrjendakennslu í salsa kl 20:30, svo allir geta tekið þátt – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða ert vanur dansari.

Að kennslu lokinni stígur hljómsveitin á svið kl 21:00 og fyllir salinn af lifandi salsa-tónum sem halda dansgólfinu á hreyfingu fram að miðnætti.

Komdu með vini, maka eða mættu einn – það eina sem skiptir máli er að mæta tilbúinn að dansa.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger