© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
30. apríl
Miðaverð frá
3.900 kr.




Silja Rós hefur heillað hlustendur sína síðastliðin ár með sinni undur fögru rödd og einlægri tónlist. Hún gaf út sína þriðju plötu á síðasta ári og fagnar nú útgáfunni með afmælistónleikum í Kaldalón Hörpu ásamt hljómsveit. Á tónleikunum verður platan spiluð í heild sinni ásamt glænýrri tónlist frá Silju Rós.
Við gerð plötunnar, …letters from my past, leitaði Silja Rós í gamlar dagbækur til að sækja sér innblástur. Platan er einlægt ferðalag Silju Rósar frá fortíð til nútíðar um vegferðina að sjálfsást. Á plötunni eru níu frumsamin lög þar sem hlýr hljóðheimur neo-soul mætir áhrifum frá jazz og popp tónlistar. Við gerð plötunnar sótti Silja Rós innblástur frá listamönnum á borð við Jacob Collier, Oliviu Dean og Yebba. Platan hefur nú þegar hlotið virkilega góða dóma hérlendis sem og erlendis. Lög plötunnar rötuðu öll í spilun á helstu útvarpsstöðvum landsins og var platan m.a. valin Plata Vikunnar á Rás 2.
Hljómsveit Silju Rósar samanstendur af Magnúsi Dagssyni (gítar), Steingrími Teague (rhodes), Kristófer Nökkva (trommur), Baldri Kristjánssyni (bassa) og söngkonunni Bergrós.
Listakonan Alda Valentína Rós hannaði myndrænt listaverk sem mun lýsa upp sviðið.
Tónlistarkonan Brynja hitar upp. Hún blandar einlægum textum við draumkenndan hljóðheim þar sem popp, R&B og indie áhrif mætast. Árið 2022 gaf hún út sína fyrstu plötu, Repeat, en undanfarið hefur hún verið að vinna að nýju efni, samhliða því að stíga ný skref í lífinu sem móðir. Á tónleikunum mun hún flytja óútgefið efni af væntanlegri plötu.
Lengd tónleika er áætluð um 80 mínútur, án hlés.
Tónleikarnir eru styrktir af Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk.

