© 2026 Tix Miðasala
Dillon
•
20. apríl
Miðaverð frá
14.990 kr.




Japönsk Whiskey hafa náð ótrúlegum hæðum í gæðum og verða sífellt vinsælli. Í þessu námskeiði verður farið yfir það helsta í japönsku viskí.
Farið verður yfir allt það helsta við japönsk viskí, en við munum:
– kynnast helstu afbrigðunum
– fara yfir sögu og hætti
– kynnast aðferðum til að njóta
Smakkað verður á a.m.k. 5–6 mismunandi tegundum.
Námskeiðið tekur um 2 tíma.
Um leiðbeinandann
Þorfinnur Guttormsson heiti ég og ætli það sé ekki best að titla mig sprúttsala.
Áhugi minn fyrir brenndum vínum vaknaði snemma og hefur í raun verið leiðandi afl allan minn starfsferil.
Ég er nú að sjá síþyrstum Dönum fyrir drykkjum frá brugghúsinu margfræga Mikkeller. Þar áður vann ég hjá Foss distillery og Glóbus, auk þess að hafa staðið ófáa vaktina á bak við barinn á sjálfum Dillon.
Upphaflega settum við Viskískólann á Dillon upp sem starfsmannaþjálfun. Fljótlega fóru að berast fyrirspurnir utan úr bæ, en þá lá það augljóslega við að hleypa fróðleiksfúsum að.

