© 2026 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
21. maí
Sala hefst
10. mars 2026, 10:00
(eftir 14 klukkustundir)




Linda Ronstadt er ein áhrifamesta söngkona sinnar kynslóðar, þekkt sem fjölhæf og tæknilega mögnuð listakona sem braut múra milli ólíkra tónlistarstefna. Meðal þekktustu laga hennar eru Blue Bayou, When will I be loved og You’re no good en í katalóg Lindu leynist fjöldi popp-, djass- og kántríslagara, ásamt söngleikjatónlist, ógleymanlegum ballöðum og stóru safni mariachi tónlistar sem hún notaði til að tengjast og heiðra sínar mexíkósku rætur.
Stjarna Lindu skein skærast á áttunda og níunda áratugnum en þá vann hún m.a. með stórstjörnum á borð við Aaron Neville, Eric Clapton, Neil Young, Dolly Parton og Emmylou Harris en platan Trio (með Parton og Harris) er talin ein merkasta útgáfa í bandarískri kántrítónlist. Linda var ötul við ýmiss konar tónlistarútgáfu, hefur selt tugmilljónir platna og unnið til fjölda Grammy verðlauna.
Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, ótrúlegu hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta söngkona. Eins og Linda, er Margrét fjölhæf tónlistarkona og hefur hún komið víða við með framlagi sínu til íslenskrar tónlistarmenningar. Margrét segist lengi hafa verið aðdáandi söngkonunnar og að lögin henti hennar rödd einkar vel. „Það er mér sönn ánægja að fá að flytja tónlistina hennar Lindu. Kraftmikil söngkona sem jafnframt hefur svo mikla næmni í túlkun. Hún syngur alltaf beint frá sálinni! Maður getur lært mikið af svona powerhouse konum„ - Margrét Eir
Hljómsveitina skipa
Andrés Þór Gunnlaugsson gítar
Helgi Reynir Jónsson gítar/píanó
Hannes Friðbjarnarson trommur
Jökull Jörgensen bassi
Gísli Magna raddir
18 ára aldurstakmark.

