© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
17. maí
Miðaverð frá
2.500 kr.




Þjóðlagatvíeykið Norðfólk gefur út sína fyrstu breiðskífu: Það mælti mín móðir. Af því tilefni verða haldnir útgáfutónleikar í Salnum Kópavogi 17.maí kl. 19:00.
Norðfólk hefur undanfarin ár sérhæft sig í þjóðlögum og hefur unnið með fjölda listamanna á Íslandi og í Noregi. Á plötunni er að finna íslensk og norsk þjóðlög í útsetningum eftir tvíeykið sjálft. Lögin eru flutt með söng, langspili, fiðlu og básúnu. Komdu og fagnaðu þessari einstöku útgáfu með okkur.

