Öskubuska

Tjarnarbíó

24. mars

Miðaverð frá

3.500 kr.

Verið velkomin á sýningu Söngskólans í Reykjavík á söngleiknum Öskubusku!
Þessi frábæra útgáfa sögunnar var síðast var sett á svið árið 1978 í Þjóðleikhúsinu, með grípandi tónlist eftir Sigurð Rúnar Jónsson (Didda fiðlu) og stórskemmtilegum söngtextum eftir Þórarin Eldjárn.  
Mikill húmor og gleði einkennir uppsetningu Söngskólans sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói 21. mars og hæfileikar nemenda sem taka þátt í sýningunni fá að skína skært.  
Einhverjir muna eflaust eftir vinsælli plötu með uppfærslu Þjóðleikhússins. Margir af okkar dáðustu leikurum voru þar í hlutverkum, svo sem Edda Þórarinsdóttir, Árni Tryggvason, Bríet Héðinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.   Söngleikurinn byggir á kvikmynd Jewgeni Schwarz um Öskubusku en sviðsgerð og þýðing er eftir Eyvind Erlendsson. Í uppsetningu Söngskólans í Reykjavík er handritið endurunnið af Þórunni Lárusdóttur.
Allir aldurshópar eru velkomnir á sýninguna. Lengd: 1 klukkustund og 50 mínútur með hléi. Miðasala á Tix.
Mikil spenna er fyrir uppsetningunni, bæði hjá nemendum og kennurum.

Hlutverkaskipan: Öskubuska: Hanna Tara Björnsdóttir  Kóngur: Þrándur Ingvarsson Prins: Sigurpáll Jónar Sigurðarson Stjúpa: María Thelma Smáradóttir  Maríanna og varðmaður: Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir Anna, samkvæmisdansmálaráðherra og varðmaður: Sara Líf Sigurjónsdóttir  Dísin: Olga María Rúnarsdóttir  Lærisveinn og skógarvörður: Sigurður Matthías Sigurðarson Foringi: Mikael Ólafsson  Þjónn og galdrakarl: Aþena Helgadóttir  Hermaður o.fl.: Jónína St. Gyðudóttir Hermaður o.fl.: Saga Karolin Szabó
Nemendur úr Ungdeild Söngskólans í Reykjavík sem taka þátt í sýningunni eru:  
Elín Katrín ÞórlindsdóttirFreyja Linnea Einarsdóttir Harriet Selma Baldursdóttir  Katalija Strzałkowska Lísa Vésteinsdóttir Solís Mia Briem Paraskevopoulou Orri Hallfríðar Þórisson Petra Freyja Baldursdóttir   Listrænir stjórnendur:   Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir  Tónlistarstjóri og píanóleikari: Kjartan Valdemarsson Deildarstjóri og söngþjálfari: Valgerður G. GuðnadóttirBúningar og leikgervi: Valgerður G. GuðnadóttirSviðshönnun: Þórunn LárusdóttirKjóll Öskubusku er hannaður og saumaður af Hönnu Töru BjörnsdótturSviðshreyfingar: Þórunn LárusdóttirAðstoð við sviðshreyfingar: Katla PetersenHljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson Ljós: Aron Martin Ásgerðarson
Hljóðfæraleikur á upptöku: Jón Sigurðsson, Manuela Wiesler, Pétur Þorvaldsson, Sigurður Rúnar Jónsson, Sigurður Karlsson og Viðar Alfreðsson.  Frumsýning 21. mars 2026 í Tjarnarbíói
Skólastjóri og framkvæmdastjóri sýningar: Guðrún Jóhanna ÓlafsdóttirHönnun á kynningarefni: Fugl á hugarflugi (Ingi Vífill Guðmundsson)Ljósmyndir: Francisco Javier Jáuregui
Söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík Valgerður G. Guðnadóttir, deildarstjóri Þórunn Lárusdóttir, leiklist Kjartan Valdemarsson, píanóleikari  Ungdeild Söngskólans í Reykjavík Harpa Harðardóttir, deildarstjóri Sibylle Köll, deildarstjóri Einar Bjartur Egilsson, píanóleikari Kristín R. Sigurðardóttir, kennari yngstu deildar   Sérstakar þakkir Sigurður Rúnar Jónsson Nýi tónlistarskólinn Sigurður Sævarsson LandsvirkjunÓperan  Snorri Petersen  Hugleikur Þórunn Guðmundsdóttir
Messíana Tómasdóttir Íris Sveinsdóttir Bragi Jónsson  Þessi útgáfa af Öskubusku var frumsýnd árið 1978 í Þjóðleikhúsinu. Tónlistin úr sýningunni var gefin út á plötu í kjölfarið. Hljóðfæraleikurinn á plötunni er undirleikur þessarar sýningar.  Söngskólinn í Reykjavík hefur verið starfandi frá haustinu 1973 og hefur útskrifað fjölmarga söngvara.  Inntökupróf fyrir Söngleikjadeild, Ungdeild, Grunndeild, Miðdeild og Framhaldsdeild  Söngskólans í Reykjavík fyrir skólaárið 2026-2027 fara fram í maí 2026. Umsóknir eru opnar á vefsíðu skólans: songskolinn.is.   Viltu ganga í Styrktarfélag Söngskólans í Reykjavík? Sendu okkur þá endilega póst í netfangið songskolinn@songskolinn.is  


Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger