© 2026 Tix Miðasala

Gamla Bíó
•
3. maí
Miðaverð frá
2.000 kr.




Reykjavík Chilli Festival
Á hátíðinni verður m.a. matarmarkaður með bragðsterkum vörum frá íslenskum smáframleiðendum, fræðsla um eldpipar, sjóðandi heit átkeppni með flottum vinningum og „Hot sauce” ársins valin.
Íslenskt „eldpipar“ handverk verður í fremra rýminu sem er hannað sérstaklega fyrir hátíðina.
Áhugi á eldpipar hefur farið vaxandi á Íslandi eins og annarsstaðar í heiminum, mörg fyrirtæki á Íslandi nota eldpipar í vöruframleiðslu og fjöldi þeirra notar íslenskan ylræktaðan eldpipar.
Eldpiparhátíðir eru mjög vinsælar í nágrannalöndum okkar og kominn tími á slíka hátíð á Íslandi til að draga athygli að þessari frábæru afurð og þeim sem eru að vinna með hana.
Hátíðin verður opin milli kl 12:00 - 18:00.
Þetta verður sjóðandi heitur viðburður sem enginn sannur eldpipar aðdáandi má láta framhjá sér fara!
Lukkudýr hátíðarinnar er Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis Kokkurinn.
Skipuleggjendur hátíðarinnar eru Þórey Hafliðadóttir eigandi Helvítis ehf. og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir eigandi Bongo Design slf.
Vefsíða: https://reykjavikchillifestival.is/
Facebook: https://www.facebook.com/reykjavikchillifestival
Instagram: https://www.instagram.com/reykjavikchillifestival/
Samstarfsaðili er Samtök smáframleiðenda matvæla.

