© 2026 Tix Miðasala
Versalir Þorlákshöfn
•
21. mars
Miðaverð frá
1.500 kr.




Teiknimyndatónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar
Lúðrasveit Þorlákshafnar býður í sannkallaða fjölskylduveislu laugardaginn 21. mars klukkan 16:00 þegar sveitin heldur glæsilega teiknimyndatónleika í Versölum, Þorlákshöfn.
Á efnisskránni verða lög úr vinsælum teiknimyndum sem flestir þekkja og elska – tónlist sem fær bæði börn og fullorðna til að brosa, syngja með og rifja upp góðar minningar.
Til að gera upplifunina enn skemmtilegri mun Leikhópurinn Lotta bregða á leik á milli atriða með fjörugum og fyndnum kynningum eins og þeim einum er lagið.
Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga munu einnig spila með í nokkrum lögum en með þessum tónleikum vonast Lúðrasveitin til þess að vekja áhuga ungra einstaklinga á blásturshljóðfærum og námi á þeim hljóðfærum.

