© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
8. maí
Miðaverð frá
35.000 kr.




Þann 8. maí næstkomandi efnir BIM Ísland til ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu. Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar fjalla um hvernig stafrænar umbreytingar geta aukið virðissköpun og hagrætt í hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja. Í ár er sjónum beint að sameiginlegum grunni stafrænnar mannvirkjagerðar - kröfum, verklýsingum og gögnum — samhliða notkun gervigreindar í hönnun og greiningu.
Ráðstefnan er fyrir alla aðila í mannvirkjagerð; hönnuði, verktaka, verkkaupa, rekstraraðila og aðra sérfræðinga. Dagskrá ráðstefnunnar og fyrirlesarar koma víðsvegar að, með ólíkan bakgrunn, flytja okkur fjölbreytt erindi sem gefa okkur innsýn í það sem er að gerast í framþróun stafrænnar mannvirkjagerðar.
Undanfarin ár hafa 250 - 300 manns sótt ráðstefnuna sem eiga það sameiginlegt að vilja kynna sér allt sem viðkemur stafrænni mannvirkjagerð. Þér býðst hér frábært tækifæri, bæði að auka þekkingu þína ásamt því að hitta kollega í faginu og stækka tengslanetið.
Innifalið í miðaverði er morgunverður, hádegisverður, kaffi og happy hour við ráðstefnulok.
BIM Ísland eru félagasamtök aðila sem koma að hönnun, framkvæmd, rekstri og eignaumsýslu mannvirkja. Tilgangur og markmið félagsins er að vera leiðandi samráðsvettvangur í þróun, innleiðingu og stöðlun í BIM og stafrænni tækni í mannvirkjagerð, ásamt því að hvetja til stöðugra umbóta í notkun BIM og stafrænnar tækni til aukinna gæða og hagræðingar á líftíma mannvirkja.
BIM Ísland hefur nýlega stofnað buildingSMART Iceland einingu, en með því eykst enn frekar geta og möguleikar BIM Ísland til að ná þessum markmiðum, með tengslum við buildingSMART International. Með þessu er BIM Ísland betur í stakk búið til að leiða samtalið um tækifærin sem felast í aukinni notkun BIM og annarrar tækni á íslenskum markaði og stuðla þannig að þróun, nýsköpun og hagræðingu innan íslenskrar mannvirkjagerðar.
Dagskrá:
08:30 Húsið opnar - afhending ráðstefnupassa í miðasölu
09:00 Setning ráðstefnu
10:30 Léttur morgunverður
12:15 Hádegisverður
14:35 Síðdegiskaffi
16:00 Ráðstefnu lokið
16:00 Happy hour
18:00 Formlegri dagskrá lokið
Nánari dagskrá kemur síðar.

