Djúpt Inn í Skóg

Menntaskólinn við Hamrahlíð (Mikligarður)

6. - 19. mars

Sala hefst

20. febrúar 2026, 12:00

(eftir 1 dag)

Djúpt inn í skóg

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð kynnir með stolti söngleikinn Djúpt inn í skóg!

Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og tónlistarstjóri er Gunnlaugur Bjarnason. Leikritið samdi James Lapine og er tónlist og upprunalegir söngtextar eftir Stephen Sondheim. Íslensk þýðing er eftir Orra Huginn Ágústsson, Þór Breiðfjörð og Einar Aðalsteinsson.

Þegar gengið er inn á Miklagarð, í Menntaskólanum við Hamrahlíð, munu leikhúsgestir umsvifalaust halda á vit ævintýranna og týnast djúpt inn í skóginum. Þar munu áhorfendur hitta persónur sem þau kannast ábyggilega við, eins og Rauðhettu, Öskubusku, Jóa og Garðabrúðu, ásamt öðrum kunnulegum persónum úr Grimmsævintýrunum, en einnig kynnast áður óþekktum karakterum og óskum þeirra allra.

Leikritið er göldrum líkast en einnig spennandi og drungalegt eins og kann að vera í skóginum. Allir aldurshópar eru velkomnir á sýninguna en hafa ber í huga að þetta er ekki barnasýning. Börn eru þó velkomin í fylgd með fullorðnum.

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð hefur síðustu ár sett upp stórar og metnaðarfullar sýningar og hlotið mikla athygli og hrós fyrir. Söngleikurinn í ár er engin undantekning.

Allt að 100 nemendur koma að uppsetningu þessarar sýningar, hvort sem það er með leik, söng eða dans á sviðinu, sem danshöfundar, með hönnun og sköpun sviðsmyndar, búninga, leikmuna, hárs og förðunar eða leikskráar, tæknikeyrslu, markaðssetningu eða sviðsstjórn.

Þetta víðfræga leikrit var frumsýnt á Broadway árið 1986 og hefur unnið til ótalmargra verðlauna, þar á meðal margra Tony- og Grammy-verðlauna. Tónlistin er stórbrotin og sagan ekki síður áhrifarík. Boðskapur leikritsins er einstaklega fallegur og situr eftir.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger