© 2026 Tix Miðasala

Hljómahöll
•
12. apríl
Miðaverð frá
8.500 kr.




Söngvararnir Hera Björk, Einar Örn og Bjarni “Töfrar” Baldvins leiða hér saman hesta sína og flytja lögin sem að mömmur & ömmur rauluðu við heimilistörfin á 5.,6. og 7.áratug síðustu aldar. Þau syngja lögin, segja sögurnar og rifja upp alla gömlu góðu hittarana á borð við Heyr mitt ljúfasta, Björt mey, Lóa litla, Þrek og tár, Bjössi á Mjólkur, Vegir liggja, Vertu ekki að horfa ofl. ofl. ofl.! Og þetta gera þau undir dillandi hljóðfæraleik hljómsveitar meistara Björns Thoroddsen, en hana skipa auk gítarmeistara Björns, Matti Kallio á píanó, Sigfús Óttarsson á Trommur og Jón Rafnsson á bassa.
Heru Björk þarft nú vart að kynna enda hefur hún sungið og skemmt þjóðinni í rúm 30 ár af sinni alkunnu. Bjarni Töframaður hefur að sama skapi töfrað landann upp úr skónum og skemmt í fjölda ára við góðan orðstír þannig að við þurfum ekki mörg orð um hann. En hinn unga Einar Örn þekkja færri og við spáum því (og þú last það fyrst hér;) að það muni svo sannarlega breytast hratt því að þessi knái og hæfileikaríki ungi herramaður er komin til að sjá og sigra. Og hann kemur ekki tómhentur upp á svið því að honum ber sú gæfa til að vera hvorki meira né minna en barnabarnabarn okkar eina sanna Ragga Bjarna! Og það er óhætt að fullyrða að afagenin hafa náð að hríslast niður ættartréð því að pilturinn er svo hressilega smitaður af hæfileikum og sviðsljóma að það er eins og okkar allra besti Raggi sé mættur aftur í sínum flotta jakka.
Sérstakur heiðursgestur verður söngkonan góðkunna Hjördís Geirs sem að hefur sungið og skemmt landanum síðan 1959 og hvergi nærri hætt.
Tónlistarveisla af gamla skólanum sem þú & þínir mega ekki láta fram hjá sér fara.
Tónlistarstjórn og gítarleikur: Björn Thoroddsen
Píanó og Nikka: Matti Kallio
Bassi: Jón Rafnsson
Trommur: Fúsi Óttars
https://www.facebook.com/herabjork
https://www.facebook.com/bjarni.baldvinsson

