© 2026 Tix Miðasala

Hljómahöll
•
21. mars
Miðaverð frá
7.900 kr.




Jesús Kristur Súpergoð í flutningi Kórs Keflavíkurkirkju og Kórs Akraneskirkju ásamt Eyþóri Inga og Stebba Jak.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum kl. 14:00 þann 21. mars!
Kór Keflavíkurkirkju og Kór Akraneskirkju ætla í sameiningu að flytja valin lög úr rokksöngleiknum Jesús Kristur Súpergoð í Hljómahöll 21. mars kl. 14 og 17. Tónlistin er eftir Andrew Lloyd Webber í íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar og með nýjum útsetningum Arnórs Vilbergssonar.
Um er að ræða 100 manna kór. Fjölda einsöngvara innan kórsins sem koma munu fram ásamt hljómsveit. Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson og Hilmar Örn Agnarsson. Eyþór Ingi og Stebbi Jak syngja Jesú og Júdas.
Flestir þekkja rokksöngleikinn en hann segir frá síðustu dögum Jesú, séð að stórum hluta frá sjónarhorni Júdasar.

