© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
27. maí
Miðaverð frá
4.900 kr.




Haukur Gröndal, saxófónn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Múlakvintettinn lýkur vordagskrá Múlans og fagnar 100 ára fæðingarafmæli saxófónleikarans John Coltrane, eins áhrifamesta brautryðjanda tónlistarmanns djasssögunnar. Á efnisskránni er fjölbreytt úrval tónlistar Coltrane, sett í nýjar og lifandi útsetningar fyrir tvo saxófóna og rytmasveit. Tónlistarflutningur kvintettsins einkennist af krafti, tilfinningadýpt og dillandi flæði þar sem sveiflan ræður ríkjum og arfleifð Coltrane fær að njóta sín í ferskum búningi.

