Anna Sóley og vinir - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

20. maí

Miðaverð frá

4.900 kr.

Anna Sóley, söngur, fiðla, gítar

Daníel Helgason, gítar

Nico Moreaux, bassi

Magnús Trygason Eliassen, trommur

Anna Sóley blandar saman jazzi og söngvaskáldahefð í impressjónístískum og persónulegum lögum. Frásaga skipar stóran sess í verkum Önnu sem spanna víða sýn en spuni og tjáning hljóðfæraleikara fá mikið rými í flutningi á tónlistinni. Samræður við samtíma, fortíð og skáldsagnapersónur gefa oft tóninn í textunum sem liggja einhvers staðar á milli raunveruleika og draumheima, íslenskrar hjátrúar og heimspeki. Anna sækir til mismunandi stíla eins og samtíma og skandinavísks jazz, alþýðutónlistar, blús og grúftónlistar. Leiknar verða tónsmíðar af væntanlegri breiðskífu í bland við eldri tónsmíðar eftir Önnu og fáein tökulög, tónsmíðar eftir Brian Blade, Ambrose Akinmusire og Kenny Wheeler. Nýju lögin kanna hegðunarmynstur, sérstaklega þá hvernig frásögn á það til að hafa áhrif á sýn okkar á tilveruna. Það endurspeglast í mótífum í tónlistinni sem oft á tíðum hefur einkennandi andrúmsloft sem leiðir athyglina áfram í draumkenndum dansi. „Góð, hlý og innileg“ sagði bandaríski tónlistargagnrýnandinn David Fricke um tónleika Önnu á Off-Venue Airwaves 2024 í þætti sínum The Writer's Block.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger